| Ólafur 的个人资料Ólafur Daníelsson照片日志列表 | 帮助 |
|
10月25日 Út að skokkaFór áðan út að skokka i fyrsta sinn í um 7 ár! Síðan síðast hef ég elst um 7 ár (dö!) og þyngst um um 15 kg - þetta var því ekki alveg jafn auðvelt eins og um árið... Var þó í hvetjandi félagsskap, því ég fékk gullfallega súkkulaðibrúna Labrador tík með mér! Fór að heiman uppá holt, að flóanum fyrir neðan holtið, að golfskála, að Hvaleyrarskóla, í gegnum Vallarhverfið, aftur að golfskálanum, þaðan að Krónunni og svo að Holtanesti, 10-11, Eyrarholti og svo heim aftur! Úff!
Kannski maður geri þetta árlega héðan í frá (sbr. færslu að neðan)!! :D
Já, við erum víst 3ja feitasta þjóð í heimi...Af visi.is:
"...fólki yfir kjörþyngd hefur fjölgað síðustu árin. Á undanförnum árum hækkaði hlutfall kvenna yfir kjörþyngd úr þrjátíu og fjórum prósentum í þrjátíu og níu. Karlarnir hafa hér vinninginn því körlum yfir kjörþyngd hefur fjölgað úr þrjátíu og níu prósentum í fimmtíu og sjö."
Ótrúlegt...
10月22日 Barnapössun og heimsókn til tvíburanna hjá E&JÁ fimmtudaginn var Sara Björk í pössun hjá Valdísi, og svo núna í kvöld fórum við í heimsóknt til Eyrúnar og Jobba og tvíburanna :) Set inn nokkrar myndir :) 10月21日 Slatti að gera...Úff - erfið vika að baki! Búinn að vinna nánast "of mikið" í vikunni - það er svosem ágætt öðru hverju að finna fyrir smá stressi:)
Hafði hugsað mér að taka það tiltölulega rólega um helgina. Ætla þó að kíkja í kaffiboð í tilefni útskriftar bróður míns og heimsækja Eyrúnu og Jobba og tvíburana um helgina:) 10月13日 Loksins:)Ólafur Daníelsson, 151079-5719, verkfræðingur. Fær leyfi 04.10.05. , sbr. http://ivr.stjr.is/leyfisveitingar/handhafar-leyfa/nr/567
:)
10月2日 Myndir frá SpániVar að skella inn "nokkrum" myndum frá Spánarferðinni í ágúst! Vonandi að þetta kveiki áhugan hjá einhverjum á að heimsækja þessa stórkostlegu borg (Barcelona).
Kv.
ÓD
|
|
||||
|
|